Við Kjallarnir höfum verið gagnrýndir
undanfarið vegna blogg leysis svo nú kemur eitt stk alvöru
blogg fyrir alvöru Kjallaunenndur um Kristilega
stjörnuspeki
Jn 8:13 Jesús segir ... Ég er ljós
heimsins...
The Christian religion is a parody on the worship of the Sun, in
which they put a man whom the call Christ, in the place of the Sun,
and pay him the same adoration which was originally paid to the
Sun.
Thomas Paine
Eitt best geymda leyndarmál Biblíunnar fyrir kristnum
kirkjugestum, en ég geri ráð fyrir að guðfræðingar hljóta vita, er
að tákn Kristinnar trúar grundvallast af aldagamalli stjörnuspeki
og hefðum tengdum henni.
Í upphafi fyrstu trúarbragða manna var ljós sólarinnar
grundvöllur alls lífs. Eftir myrkur (nótt) var upprisa sólar merki
um nýtt upphaf á sama hátt og upprisa Krists er fyrir kristið fólk.
Þannig reis guð upp eftir nóttina og sigraði myrkrahöfðingjann,
eins og Jesús sigrar Satan. Þannig er guð (sólin) ljós heimsins og
skapari lífs á jörðu. Það er ástæðan fyrir staðsetningu sólar efst
á himni í miðju hins forna stjörnuspekikorts (sjá fyrir ofan).
25 desember eru jól í tilefni fæðingu sólarinnar sem hækkar þá á
lofti og daginn tekur að lengja. Það er því ekki tilviljun að Jesú
er látinn fæðast þennan dag. Einnig steig Jesú niður til heljar í
þrjá daga. Sama gildir um sólina í desember, en hún er þá samtals í
þrjá daga lægst á lofti.
Fyrsta stjörnumerkið efst uppi á stjörnukortinu eru fiskarnir og
til forna voru þau ekki bara tákn mánaða heldur líka tákn fyrir
aldir (sem eru u.þ.b 2000 ár að lengd). Án þess að kafa djúpt í þau
fræði er upphafsöldin tákn fiskana og þaðan er merki Jesú komið,
því hann fæddist á öld fisksins. Það er heldur engin
tilviljun að í Mt 14:17 og 19 eru fiskarnir aðeins tveir sem Jesú
gefur fólkinu að borða, því fiskarnir eru aðeins tveir í
stjörnumerkinu. ójá gott fólk hann Jésú okkar er fiskur
Þegar sóknarprestar reyna að finna fólki stað hjá guði vitna
þeir oft í Jn 14:2 "Í húsi föður míns eru margar vistarverur". En
föðurinn býr á himni og þar eru samtals tólf vistaverur samkvæmt
aldagamalli hefð stjörnuspekinnar, sem eru tólf stjörnumerki. Það
er því nóg pláss í himnaríki.
Fiskurinn
Árstími Fisksins er í lok vetrar, þegar veður er
umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli Fisksins, í
margbrotinni og misjafnri skapgerð. Tími Fisksins er biðtími. Vorið
er að nálgast og með því fyrirheit sumarsins en enn ríkir þó vetur.
Á þessum tíma er litið um öxl yfir liðinn vetur. Jafnframt er horft
fram á við og það undirbúið eða hugleitt sem gera skal á komandi
vor- og sumarmánuðum. Þetta birtist í því að Fiskurinn hefur
hæfileika til að hafa yfirsýn yfir mál og hugleiða þau í stærra
samhengi.
Aðlögunarhæfni
Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er
breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt.
Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi
öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið
víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í
spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig
fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en
getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera' á eitt ákveðið.
Hann er stórhuga.
Ímyndunarafl
Annar sterkur eiginleiki Fisksins er ímyndunarafl og þar af
leiðandi hæfileiki til að sjá atburði og fólk fyrir hugskotssjónum
sér. Hann hefur einnig sterkt innsæi. Þetta þýðir að Fiskurinn
getur búið til myndir af því sem hann er að hugsa um.
Tveir heimar
Tákn Fisksins er tveir fiskar sem synda hvor í sína áttina, en
eru eigi að síður tengdir saman með bandi. Þetta hefur verið túlkað
á nokkra vegu. Ein kenningin er sú að til séu annars vegar Fiskar
sem syndi á móti straumnum og hins vegar þeir sem láti sig berast
með veðri og vindum lífsins. Þetta getur verið rétt, en einnig er
hugsanlegt að þetta tákni að í hverjum einstökum Fiski búi tveir
eðlisþættir eða ákveðin klókindi. Fiskurinn geti því synt á móti
straumnum og geri það þegar sá gállinn er á honum, en kunni einnig
að sæta lagi og berast með straumnum þegar það hentar honum betur.
Önnur kenning er sú að annar Fiskurinn sé í þessum heimi en hinn
lifi í annarri veröld, í heimi ímyndunarafls, lista eða andlegra
málefna, eftir því hver persónuleg viðhorf viðkomandi eru. Það er
að minnsta kosti staðreynd að Fiskurinn þolir illa gráan og
hversdagslegan veruleika og þarf á því að halda að glæða líf sitt
litum og búa til ævintýri.
Menning
Áhugi á tónlist, menningu og listum er áberandi í fari Fisksins.
Ef hann leggur ekki sjálfur stund á listir hefur hann yfirleitt
gaman af því að njóta lista, sækja leikhús, kvikmyndasýningar,
tónlistarviðburði, málverkasýningar og þess háttar.
Sköpun
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Fiskurinn
að fá jákvæða útrás fyrir ímyndunarafl sitt í einhvers konar
skapandi viðfangsefnum. Hann tekur mikið inn á sig og þarf því að
hreinsa sig reglulega af utanaðkomandi áhrifum. Það getur hann gert
með því að njóta tónlistar, með því að draga sig annað slagið í hlé
eða með því að breyta til og skipta um umhverfi.
Stór fjölbreytileiki
Vegna sterkrar aðlögunarhæfni og sveigjanleika er sennilega
erfiðast af öllum stjörnumerkjunum að setja Fiskinn á afmarkaðan
bás. Margir Fiskar sækja í listir, tónlist og dans, aðrir í
fjölmiðla, sumir í stjórnmál og enn aðrir í viðskipti. Hvert sem
sviðið er nákvæmlega þá notar Fiskurinn innsæi sitt og
ímyndunarafl, og er skapandi, stórtækur og landamæralaus í
athöfnum.
Þegar talað er um 'Fiska' og 'Fiskinn', er átt við þá sem
fæddust þegar Sólin var í Fiskamerkinu. Þeir einstaklingar sem
fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið
og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs
um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir,
Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um
(þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum
stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara
fjallað um stjörnumerkin.
Það sem mér finnst merkilegast þegar maður lítur svona snogglega
yfir þennan texta, er tengingin milli Jesús Kristar og Curt Cobains
sem báðir notuðu svipaða aðferðafræði við að gera nafn sitt
ódauðlegt, þeir afrekuðu báðir alveg ótrúlega hluti á lífstíð
sinni, en létu síðan báðir lífið á toppnum
Frægir Fiskar
Hannes H. Gissurarson 19. febrúar 1953
háskólaprófessor
Ólöf Kolbrún Harðardóttir 20. febrúar 1949 söngkona
Gordon Brown 20. febrúar 1951 fjármálaráðherra UK
Cindy Crawford 20. febrúar 1966 súpermódel
Curt Cobain 20. febrúar 1967 tónlistamaður,
Nirvana
Brian Littrell 20. febrúar 1975 tónlistamaður, Backstreet
Boys
Lauren Ambrose 20. febrúar 1978 leikkona, Six Feet Under
Jón Baldvin Hannibalsson 21. febrúar 1939
stjórnmálamaður
David Geffen 21. febrúar 1943 framleiðandi, Dreamworks
Kelsey Grammer 21. febrúar 1955 leikari, Fraser
Jennifer Love Hewitt 21. febrúar 1979 leikkona, Party of
Five
Christina Ricci 21. febrúar 1980 leikkona, The Opposite of
Sex
Charlotte Church 21. febrúar 1986 söngkona
Ted Kennedy 22. febrúar 1932 stjórnmálamaður
Kyle MacLachlan 22. febrúar 1959 leikari
Baltasar Kormákur 22. febrúar 1966 leikari, -stjóri,
framleiðandi
Lea Salonga 22. febrúar 1971 söngkona
Drew Barrymore 22. febrúar 1975 leikkona
Jenny Frost 22. febrúar 1978 poppstjarna, Atomic Kitten
Peter Fonda 23. febrúar 1940 leikari, Easy Rider
Naruhito 23. febrúar 1960 prins, Japan
Kristen Davis 23. febrúar 1965 leikkona, Sex & the City
Michael Dell 23. febrúar 1965 forstjóri Dell
Melinda Messenger 23. febrúar 1971 súpermódel
Gunnar Eyjólfsson 24. febrúar 1926 leikari
Philiph H. Knight 24. febrúar 1938 forstjóri Nike
Steve Jobs 24. febrúar 1955 forstjóri Apple
Paula Zahn 24. febrúar 1956 fréttamaður
Veronica Webb 24. febrúar 1965 módel, rithöfundur,
leikkona
Lleyton Hewitt 24. febrúar 1981 tennisleikari
Tom Courtenay 25. febrúar 1937 leikari
George Harrison 25. febrúar 1943 gítarleikari, Bítill
Elkie Brooks 25. febrúar 1946 söngkona
Neil Jordan 25. febrúar 1950 leikstjóri, the Crying Game
Tea Leoni 25. febrúar 1966 leikkona, Deep Impact
Johnny Cash 26. febrúar 1932 þjóðlagasöngvari
Sandie Shaw 26. febrúar 1947 söngkona, Puppet on a String
Michael Bolton 26. febrúar 1953 söngvari
Erykah Badu 26. febrúar 1971 söngkona, lagahöfundur
Gísli Marteinn Baldursson 26. febrúar 1972
sjónvarpsmaður
Jenny Thompson 26. febrúar 1973 sundkona
Elizabeth Taylor 27. febrúar 1932 leikkona
Ralph Nader 27. febrúar 1934 neytendafrömuður
Paddy Ashdown 27. febrúar 1941 stjórnmálamaður UK
Paul Humphreys 27. febrúar 1960 hljómborðsleikari, OMD
Chelsea Clinton 27. febrúar 1980 dóttir Bill & Hillary
Robin Cook 28. febrúar 1946 stjórnmálamaður
Stephanie Beacham 28. febrúar 1947 leikkona, the Colbys
Sir Terry Leahy 28. febrúar 1956 forstjóri Tesco
Marcello Robinson 28. febrúar 1982 leikari
Karolina Kurkova 28. febrúar 1984 módel
Marcia Dangerfield 29. febrúar 1952 leikkona
Tim Powers 29. febrúar 1952 rithöfundur
Antonio Sabato jr 29. febrúar 1972 leikari
Louis Gerstner 1. mars 1942 forstjóri IBM
Árni Johnsen 1. mars 1943 söngvari &
stjórnmálamaður
Roger Daltrey 1. mars 1944 söngvari
Jackie Brambles 1. mars 1967 DJ, útvarpskona
Javier Bardem 1. mars 1969 leikari, framleiðandi
Michail Gorbatschow 2. mars 1931 stjórnmálamaður
Lou Reed 2. mars 1942 tónlistamaður, Walk on the Wild Side
Jon Bon Jovi 2. mars 1962 söngvari
Diana Kauffman 2. mars 1976 módel, leikkona, Getting Out
Chris Martin 2. mars 1977 söngvari, Coldplay
Rebecca Harrell 2. mars 1980 leikkona, Suspended Animation
Robert Iler 2. mars 1985 leikari, Sopranos
Miranda Richardson 3. mars 1958 leikkona, the Crying Game
Jackie Joyner-Kersee 3. mars 1962 íþróttakona
Julie Bowen 3. mars 1970 leikkona
David Faustino 3. mars 1974 leikari
Ronan Keating 3. mars 1977 poppstjarna, Boyzone
James Ellroy 4. mars 1948 rithöfundur
Chris Rea 4. mars 1951 söngvari & lagahöfundur
Patricia Heaton 4. mars 1958 leikkona, Everybody Loves
Raymond
Árni Snærvarr 4. mars 1962 fréttamaður
Patsy Kensit 4. mars 1968 leikkona
Samantha Eggar 5. mars 1939 leikkona, the Collector
Alan Clark 5. mars 1952 hljómborðsleikari, Dire Straits
Marsha Warfield 5. mars 1955 leikkona, Night Court
Kimberly McCullough 5. mars 1978 leikkona, Emmy winner
Jason Fuchs 5. mars 1986 leikari, Winter Solstice
Alan Greenspan 6. mars 1926 hagfræðingur
Mary Wilson 6. mars 1944 söngkona, the Supremes
Kiki Dee 6. mars 1947 poppsöngkona
Sigmundur Ernir Rúnarsson 6. mars 1961 fjölmiðlamaður,
skáld
Shaq O'Neal 6. mars 1972 körfuboltastjarna
Tony Armstrong-Jones 7. mars 1930 ljósmyndari
Michael Eisner 7. mars 1942 forstjóri Disney
Aðalsteinn Ingólfsson 7. mars 1948 listfræðingur
Helgi Þorgils Friðjónsson 7. mars 1953 myndlistamaður
Rachel Weisz 7. mars 1971 leikkona, the Mummy
Lynn Redgrave 8. mars 1943 leikkona
Cheryl Baker 8. mars 1954 söngkona, Bucks Fizz
Clive Burr 8. mars 1957 trommari, Iron Maiden
Gary Numan 8. mars 1958 söngvari, 'Cars'
Freddie Prinze jr 8. mars 1976 leikari
James Van Der Beek 8. mars 1977 leikari
John Cale 9. mars 1942 the Velvet Underground
Bobby Fisher 9. mars 1943 skákmaður
Guðjón Friðriksson 9. mars 1945 sagnfræðingur
Juliette Binoche 9. mars 1964 leikkona, Chocolat
Juan Sebastian Veron 9. mars 1975 fótboltastjarna
Þorsteinn Ingi Ragnarsson 10. mars 1990 fótboltastjarna,
Heimsspekingur og Kyntákn
Samuel eto'o 10. mars 1981 fótboltastjarna
Sharon Stone 10. mars 1958 leikkona, Basic Instinct
Osama Bin Laden 10. mars 1954 Frelsishetja
Játvarður 10. mars 1964 prins
Neneh Cherry 10. mars 1964 söngkona
Ben Crowley 10. mars 1980 leikari
Rupert Murdoch 11. mars 1931 viðskiptajöfur
Antonin Scalia 11. mars 1936 hæstaréttadómari USA
Lisa Loeb 11. mars 1968 söngkona, 'Stay'
LeToya Luckett 11. mars 1981 poppari, Destiny's Child
Thora Birch 11. mars 1982 leikkona, American Beauty
Liza Minelli 12. mars 1946 leikkona, Cabaret
David Mellor 12. mars 1949 stjórnmálamaður
Aaron Eckhart 12. mars 1968 leikari, Possession
Eva Herzigova 12. mars 1973 súpermódel
Neil Sedaka 13. mars 1939 söngvari, lagahöfundur
Charo 13. mars 1941 söngkona, Cuchi Cuchi Girl
Dana Delany 13. mars 1956 leikkona, China Beach
Albert Einstein 14. mars 1879 vísindamaður
Michael Caine 14. mars 1933 leikari
Ounicy Jones 14. mars 1933 tónlistamaður
Billy Crystal 14. mars 1948 leikari
Albert 14. mars 1958 prins af Monoco
Sheila Chandra 14. mars 1965 söngkona
Taylor Hanson 14. mars 1983 tónlistamaður
Jamie Bell 14. mars 1986 leikari, dansari, Billy Elliott
Laurence Tisch 15. mars 1923 viðskiptajöfur
Ry Cooder 15. mars 1947 Lues gítarleikari, tónskáld
Lynda Jane Russell 15. mars 1952 söngkona
Jerry Lewis 16. mars 1926 leikari, the Nutty Professor
Sanford I. Weill 16. mars 1933 forstjóri Citigroup
Kate Nelligan 16. mars 1951 leikkona, Prince of Tides
Alice Hoffman 16. mars 1952 rithöfundur
Lesley-Ann Down 17. mars 1954 leikkona
Rob Lowe 17. mars 1964 leikari, the West Wing
Mia Hamm 17. mars 1972 fótboltastjarna
Caroline Corr 17. mars 1973 söngkona, the Corrs
Stephen Gately 17. mars 1976 oyzone
John Updike 18. mars 1932 rithöfundur, Rabbit, Run
Heimir Karlsson 18. mars 1961 sjónvarpsmaður
Vanessa Williams 18. mars 1963 leikkona, Spider Woman
Latifah Queen 18. mars 1970 leikkona, rapp listamaður
Danny Murphy 18. mars 1977 fótboltastjarna
Glenn Close 19. mars 1947 leikkona
Harry Weinstein 19. mars 1952 viðskiptajöfur
Valgerður Matthíasdóttir 19. mars 1953 sjónvarpskona
Bruce Willis 19. mars 1955 leikari, Die Hard
Spike Lee 20. mars 1957 leikstjóri
Holly Hunter 20. mars 1958 leikkona
Kathy Ireland 20. mars 1963 módel
Matt Broderick 21. mars 1962 leikari
Rosie O'Donnell 21. mars 1962 leikkona
Mark Williams 21. mars 1975 snookerspilari
og margir margir fleiri sem ég nenni ekki að skrifa.....